Hleð inn spilara...


PGA | laugardagur 18. febrúar 2012 | 02:25

Mickelson áfram efstur á Northern Trust Open


Phil Mickelson er með eins höggs forystu þegar Northern Trust Open mótið á PGA-mótaröðinni er hálfnað. Mickelson lék annan hringinn á Riviera vellinum á 70 höggum eða einu höggi undir pari og er samtals á sex höggum undir pari. Hann hefur tvisvar unnið þetta mót og sýndi snilli sína með fleygjárnunum í gær þegar hann sló niður höggi fyrir erni með lob-fleygjárni á 8. holu.

Þetta var kannski ekki minn besta dagur en ég náði að koma inn á fínu skori og var heppinn á 8. holu,“ sagði Mickelson eftir hringinn en hann er einu höggi á undan Pat Perez sem lék frábærlega við erfiðar aðstæður í gær þegar hann kom í hús á 65 höggum eða sex höggum undir pari.

Fimm kylfingar koma jafnir í þriðja sæti á samtals fjórum höggum undir pari en þeirra á meðal eru Matt Kuchar. Mótið er galopið og gætu margir blandað sér í baráttuna um sigurinn. Efsti kylfingurinn á heimslistanum, Luke Donald frá Englandi, lenti í örlitlum vandræðum með vindinn á öðrum hring og lék á 72 höggum eða einu höggi yfir pari. Donald er samtals á pari í 28. sæti.

Högg dagsins átti Joe Ogilvy sem fór holu í höggi í tíunda sinn á ferlinum á 16. holunni. Hann var í hættu á að komast ekki í gegnum niðurskurðinn en ásinn tryggði honum keppnisrétt um helgina í þessu sterka móti. Hann er einnig í 28. sæti.

Staðan í mótinu