Hleð inn spilara...
19. holan | miðvikudagur 15. febrúar 2012 | 13:44
Gulbis djörf í baðfataútgáfu Sports Illustrated

Natalie Gulbis, sem er ein af vinsælustu og bestu golfkonum í heimi, er ein þriggja íþróttakvenna sem koma fram í baðfataútgáfu bandaríska íþróttatímaritsins Sports Illustrated. Gublis er þó í engum baðfötum í myndatökunni því í ár voru íþróttastúlkurnar málaðar líkt og þær væru í baðfötum.
Gulbis er uppi með sér með að vera í tímaritinu í ár. „Ég er mjög þakklát með að hafa fengið tækifæri til að vera hluti af baðfataútgáfu Sports Illustrated. Þetta er mikill heiður fyrir mig og eitthvað sem mig hefur langað að gera í nokkur ár. Ég var mjög spennt þegar ég fékk boðið,“ sagði Gublis sem átti sjálf hugmyndina að líkamsmálningunni.
„Þegar ég gekk inn í lyftuna eftir fyrsta fundinn á skrifstofu SI í janúar á síðasta ári þá spurði ég þau hvort þau hefðu áður málað líkama íþróttamanna í myndatökunni. Þegar hurðin á lyftunni var að lokast þá sagði M.J. Day (yfirritstjóri), „Nei við höfum ekki gert það, værir þú til í það?“ Ég sagði, „Já, ég held það,“ og í kjölfarið var ákveðið að fara þessa leið,“ sagði Gulbis.
Hún er 29 ára gömul og hefur leikið á LPGA-mótaröðinni frá árinu 2002. Hún á einn sigur á LPGA-mótaröðinni að baki og hefur nokkrum sinnum verið nálægt sigri í risamóti.
Hér má sjá fleiri myndir af Natalie Gulbis úr myndatöku Sports Illustrated.