Hleð inn spilara...


PGA | þriðjudagur 14. febrúar 2012 | 10:10

GolfTV: Lygilegt högg hjá Pavin - Bestu högg helgarinnar


Bandaríski kylfingurinn Corey Pavin átti ótrúlegt högg á lokahringnum á Allianz Championship mótinu á bandarísku Öldungamótaröðinni um helgina. Pavin fór að lokum með sigur af hólmi í mótinu og munaði þar miklu um lygilegt golfhögg hans á 14. braut þegar hann bjargaði pari með ótrúlegum hætti.

Í myndbandinu hér að ofan má sjá fimm bestu högg helgarinnar á PGA-mótaröðinni og er höggið hjá Pavin það besta. Einnig má sjá frábær högg frá því Tiger Woods og Phil Mickelson í Pebble Beach National mótinu en þar fór sá síðarnefndi með sigur af hólmi.