Hleð inn spilara...
Fréttir | laugardagur 11. febrúar 2012 | 01:49
Wi með þriggja högga forystu á Pebble Beach - Woods í 16. sæti
Charlie Wi frá Suður-Kóreu hefur þriggja högga forystu á Pebble Beach National mótinu sem er hálfnað á PGA-mótaröðinni. Wi lék annan hringinn í mótinu á 69 höggum og er samtals á tólf höggum undir pari. Dustin Johnson er í öðru sæti en hann lék annan hringinn í gær á 72 höggum eða á pari.
Fimm kylfingar koma jafnir í þriðja sæti á átta höggum undir pari en þeirra á meðal eru þeir Vijay Singh og Padraig Harrington.
Tiger Woods er sex höggum á eftir Wi en hann lék annan hringinn í mótinu á 68 höggum eða tveimur höggum undir pari og er samtals í 16. sæti á sex höggum undir pari. „Ég sló aftur vel af teig en því miður þá fékk ég ekki nógu marga fugla. Ég var að slá boltann á ranga staði og flatirnar urðu erfiðari eftir að það fór að rigna,“ sagði Woods eftir annan hringinn en hann notaði 33 pútt á hringnum. Hann sló vel en þarf að nýta færin betur.
Woods lék á Monterey Peninsula vellinum í gær en mun leika á Pebble Beach vellinum í dag. Takist honum að leika vel gæti hann unnið sig upp í toppbaráttuna í þessu skemmtilega móti þar sem leikið er á þremur golfvöllum samtímis.
Staðan í mótinu
