Hleð inn spilara...


Evrópumótaröð karla | föstudagur 10. febrúar 2012 | 17:21

McIlroy og Björn efstir í Dubai


Rory McIlroy og Thomas Björn eru jafnir og í forystu þegar Dubai Desert Classic mótið á Evrópumótaröðinni er hálfnað. Þeir eru samtals á 13 höggum undir pari en McIloy lék á 65 höggum í dag og náði þar með forystu. Björn var á meðal þeirra síðustu til að klára hringinn og náði með góðum lokaspretti að jafna við McIlroy.

Spánverjinn Rafael Cabrera-Bello er í þriðja sæti á tólf höggum undir pari og Þjóðverjinn Martin Kaymer kemur fjórði á ellefu höggum undir pari. Hann fór holu í höggi í dag og var það í 24. sinn sem kylfingur fer holu í höggi í mótinu.

Lee Westwood er einnig í toppbaráttunni en hann er samtals á tíu höggum undir pari eftir að hafa leikið á 65 höggum í dag eða sjö höggum undir pari.

Þrátt fyrir að McIlroy sé efstur í mótinu og hafi leikið vel í dag þá taldi hann sig hafa getað gert betur. „Mér finnst eins og að ég hefði getað gert mun betur. Ég byrjaði mjög vel og náði að fá fugla eftir að því sem að leið á hringinn. Ég er með mun meira sjálfstraust á teignum og les flatirnar betur. Ég er í frábærri stöðu og spenntur fyrir helginni,“ sagði McIlroy eftir hringinn.

Staðan í mótinu


Rory McIlroy hefur leikið frábært golf í Dubai.