Hleð inn spilara...
Forsíða | föstudagur 10. febrúar 2012 | 12:36
GolfTV: Kaymer fór loksins holu í höggi!
Þjóðverjinn Martin Kaymer fór holu í fyrsta sinn á golfferlinum í morgun þegar hann þurfti aðeins eitt högg til að ljúka 7. holu vallarins á öðrum hring á Dubai Desert Classic mótinu sem fram fer á Evrópumótaröðinni.
Kaymer átti frábært golfhögg sem stefndi allan tímann beint á pinna, skoppaði tvívegis á flötinni áður en boltinn rann í miðja holu á þessari 170 metra löngu golfholu. Þessi 26 ára Þjóðverji er í öðru sæti þegar mótið er hálfnað á samtals ellefu höggum undir pari og er tveimur höggum á eftir Rory McIlroy.
Það er hreinlega með ólíkindum að Kaymer sé að fara holu í höggi í fyrsta sinn því hann er á meðal bestu kylfinga heims. Miðað við allan þann fjölda golfholna sem Kaymer leikur á ári hverju þá hlaut að koma að draumahögginu.
„Þú þarft að vera heppinn til að fara holu í höggi og auðvitað að eiga gott högg. Sem betur fer þá valdi ég rétta kylfu í dag og þessu verður fagnað í kvöld,“ sagði Kaymer sem fékk glæsilegt úr frá Omega sem verðlaun fyrir glæsihöggið. Sjúkraþjálfari Kaymer fær úrið en þeir hafa lengi veðjað um að Kaymer færi holu í höggi. Stóra stundin rann upp í dag.
