Hleð inn spilara...


Fréttir | föstudagur 10. febrúar 2012 | 10:26

Woods hæfilega sáttur með fyrsta hringinn


Tiger Woods var bæði sáttur og svekktur með fyrsta hring sinn í Pebble Beach National mótinu sem hófst í gær á PGA-mótaröðinni. Hann lék Spyglass völlinn á 68 höggum eða fjórum höggum undir pari en hefði kosið að ljúka fyrsta hring á lægra skori.

Ég sló boltanum frábærlega af teig en átti nokkur slæm högg með fleyjárnunum og ég þarf að vinna í því. Ég er örlítið svekktur því ég gat notað fleygjárn í öðru höggi á nokkrum brautum en nýtti ekki tækifærið. Ég púttaði vel í dag (í gær) og hef fundið taktinn á flötunum frá því í fyrsta hringnum í Abu Dhabi,“ sagði Woods en nánar má heyra í kappanum í myndbandinu hér að ofan.


Tiger Woods hitti um 85% brauta á fyrsta hringnum og var með 1,77 pútt að meðaltali á holu.