Fréttir | fimmtudagur 9. febrúar 2012 | 13:56

Cabrera-Bello tekur forystuna í Dubai - Góður dagur hjá McIlroy og Kaymer


Spánverjinn Rafael Cabrera-Bello hefur tveggja högga forystu eftir fyrsta keppnisdag á Dubai Desert Classic mótinu sem fram fer á Evrópumótaröðinni. Cabrera-Bello lék frábærlega í dag og lauk leik á 63 höggum eða níu höggum undir pari og er tveimur höggum á undan Þjóðverjarnu Marcel Siem og Scott Jamieson frá Skotlandi.

Cabrera-Bello byrjaði með miklum látum í dag og lék fyrstu ellefu holurnar á hringnum á níu höggum undir pari og héldu þá margir að honum tækist að leika undir 60 höggum sem er stóra markmið margra atvinnukylfinga. Hann lék hins vegar síðustu sjö holurnar á hringnum á pari.

Sjö kylfingar eru jafnir í 4. sæti á sex höggum undir pari og er Rory McIlroy þeirra á meðal. Hann hóf daginn ekkert sérstaklega en átti sérlega góðar seinni níu holur og náði þannig að blanda sér strax í toppbaráttuna. McIlroy fékk sex fugla á seinni níu holunum í dag. Hann deilir fjórða sætinu m.a. með þeim Martin Kaymer og Thomas Björn

Af öðrum þekktum kylfingum þá lék Lee Westwood á 69 höggum eða þremur höggum undir pari og John Daly lék á 71 höggi eða einu höggi undir pari. Annar hringurinn fer fram á morgun.

Staðan í mótinu


Rory McIlroy vann þetta mót árið 2009. Endurtekur hann leikinn í ár?