Hleð inn spilara...


Fréttir | fimmtudagur 9. febrúar 2012 | 09:54

GolfTV: Fyrsti golfvöllurinn í eyðimörkinni


Árið 1987 hófust framkvæmdir við að búa til fyrsta grasgolfvöllinn í Mið-Austurlöndum og var þar á ferðinni Majlis golfvöllurinn þar sem Dubai Desert Classic mótið á Evrópumótaröðinni fer fram á ári hverju.

Völlurinn er byggður í eyðimörk og því þurfti að leggja fram gríðarlegt fjármagn og vinnu til að búa til þennan glæsilega golfvöll sem oft er á topp-100 yfir bestu golfvelli í heimi. Eins og gefur að skilja þá var ekki mikið vatn á þessu svæði og því var vatn flutt um nokkra vegalengd yfir á svæðið til að hægt væri að rækt gras og annan gróður.

Í myndbandinu hér að ofan er saga Majlis golfvallarins rakin.