Hleð inn spilara...
Fréttir | fimmtudagur 9. febrúar 2012 | 07:37
GolfTV: McIlroy kann vel við sig í Dubai
Norður-Írinn Rory McIlroy er orðin stórstjarna í golfheiminum og sumir ganga svo langt að segja að hann sé arftaki Tiger Woods sem besti kylfingur heims næstu ára og áratuga. Aðeins tíminn getur leitt það í ljós.
McIlroy var snemma gríðarlegt efni og stimplaði sig rækilega í golfsöguna með frábærum sigri sínum á Opna bandaríska meistaramótinu á síðasta ári. Hann vann sinn fyrsta atvinnusigur í Dubai Desert Classic mótinu fyrir þremur árum en það mót hefst í dag á Evrópumótaröðinni. Þar verður McIlroy í eldlínunni.
Í myndbandinu hér að ofan má sjá innlit inn í feril McIlroy sem vafalaust á eftir að vera í toppbaráttunni í stóru mótunum í ár. Hann kann vel við sig í Dubai og gæti barist um sigurinn um helgina.
