Fréttir | miðvikudagur 8. febrúar 2012 | 15:54
Woods vill að lengri pútterar verði bannaðir
Tiger Woods hefur lýst því yfir opinberlega að það eigi að banna langa púttera sem hafa notið mikilla vinsælda á atvinumótaröðunum á undanförnum árum. Keegan Bradley vann PGA Meistaramótið á síðasta ári með magapútter og hafa margir kylfingar tekið upp notkun á lengri pútterum.
Málið hefur verið nokkuð umdeilt því stór hópur kylfinga er á þeirri skoðun að það eigi að banna lengri púttera. Woods er einn þeirra. „Ég trúi því að það að pútta sé list þess að stjórna líkama og kylfu. Ég held í hefðirnar í þessum efnum. Ég hef talað við Peter Dawon (framkvæmdastjóra R&A) um málið í nokkur ár. Mín hugmynd er sú að pútter verði svipuð eða minni en stysta kylfan í pokanum,“ sagði Woods.
Deiluefnið hefur oftar en ekki snúist um hina svokölluðu magapúttera (e. bellypútter) en þeir styðjast við maga kylfinga. Margir þeirra sem eru á móti þeim pútterum telja að það sé verið að auðvelda púttin með því að pútterinn styðjist við magann. Þannig sé verið að hörfa frá því hvernig pútt voru upphaflega hugsuð. Ljóst er að vafalaust á eftir að ræða málið fram og tilbaka á næstunni en það kæmi fáum á óvart ef R&A og USGA, sem stjórna golfreglum í heiminum, láti banna lengri púttera.