Fréttir | miðvikudagur 8. febrúar 2012 | 15:21
Útbúnaður: Titleist í pokanum hjá Stanley
Að venju kíkjum við í pokann hjá sigurvegurum síðustu helgar í stóru mótunum í atvinnugolfinu. Kyle Stanley og Paul Lawrie stöðu uppi sem sigurvegarar um síðustu helgi. Stanley leikur með kylfur frá Titleist. Hann fékk nýverið Titleist 712 MB járn sem hann hefur heldur betur náð góðum árangri með á undanförnum vikum.
Lawrie er einn af þeim kylfingum sem er með kylfur frá mismunandi framleiðendum, sannkallað bland í poka hjá Lawrie. Hann er með TaylorMade R11 dræver, Callaway brautartré, Wilson járn og Titleist fleygjárn. Pokann hjá kylfingunum má sjá hér að neðan.
Kyle Stanley
PGA-mótaröðin: Waste Management Phoenix Open
Dræver: Titleist 910D3 (8.5°)
Brautartré: Titleist 910Fd 3-tré (13.5°)
Járn (2): Titleist 503i
Járn (3-PW): Titleist 712 Series MB (Project X 6.5 shafts)
Fleygjárn: Titleist Vokey Design (52°, 56°) og Titleist Vokey SM4 (60°)
Pútter: Scotty Cameron Timeless (GSS)
Bolti: Titleist Pro V1x
Skór: FootJoy FJ Icon
Hanski: FootJoy StaSof
Paul Lawrie
Evrópumótaröðin: CommercialBank Qatar Masters
Dræver: TaylorMade R11
Brautartré: Callaway FT Tour 3-tré (15°)
Járn (3-PW): Wilson Staff FG Tour
Fleygjárn: Titleist Vokey SM4 (52° og 60°)
Pútter: Odyssey White Hot 2-Ball Blade
Bolti: Titleist Pro V1x
Skór: FootJoy FJ Icon
Hanski: FootJoy

Paul Lawrie er ekki með samning við eitt kylfufyrirtæki. Bland í poka.