Fréttir | miðvikudagur 8. febrúar 2012 | 14:39

Grace valinn kylfingur janúarmánaðar


Branden Grace frá Suður-Afríku hefur verið valinn kylfingur janúarmánaðar á Evrópumótaröðinni eftir frábæra frammistöðu í fyrstu mótum ársins. Þessi 23 ára kylfingur sigraði bæði í Joburg Open og Volvo Golf Champions mótunum sem fram fóru í Suður-Afríku.

Framganga Grace er athyglisverð að því leytinu til að í desember síðastliðnum lék hann í úrtökumóti fyrir Evrópumótaröðina og náði að tryggja sér keppnisrétt. Hann hefur því gripið tækifærið á Evrópumótaröðinni báðum höndum.

Þetta er í fyrsta sinn sem Grace hlýtur viðurkenningu af þessu tagi en hann kemur núna til greina sem kylfingur ársins í lok leiktíðar. Luke Donald var valinn kylfingur ársins á síðasta ári.