Hleð inn spilara...
Fréttir | miðvikudagur 8. febrúar 2012 | 09:41
GolfTV: Eftirminnileg augnablik á Pebble Beach
Á morgun hefst Pebble Beach mótið á PGA-mótaröðinni sem er eitt af skemmtilegri mótum ársins. Í mótinu leika atvinnumenn samhliða þekktum áhugamönnum úr röðum leikara, íþróttamanna, tónlistarmanna og fleiri stéttum.
Pebble Beach völlurinn er einn þekktasti golfvöllur heims og er að margra mati einn skemmtilegast keppnisvöllurinn á PGA-mótaröðinni. Í myndbandinu hér að ofan má sjá nokkur eftirminnileg augnablik frá mótum á Pebble Beach vellinum í gegnum tíðina.

Sjöunda holan á Pebble Beach vellinum er stórglæsileg.