Fréttir | miðvikudagur 8. febrúar 2012 | 07:53

Börnin hvetja Woods til dáða


Tiger Woods segist finna fyrir meiri hvatningu en áður til að komast aftur á fyrri stall í golfinu. Börnin hans vilja sjá hann í sjónvarpinu og eina leiðin til þess er að hann fari að blanda sér aftur í toppbaráttuna í golfmótum.

Woods á dótturina Sam, 5 ára, og Charlie, 3 ára, með fyrrum eiginkonu sinni Elin Nordegren og fylgjast þau með pabba sínum þegar hann keppir í golfmótum.

Börnin mín eru komin á þann aldur að þau vilja sjá pabba sinn í sjónvarpinu,“ sagði Woods á blaðamannafundi í gær fyrir Pebble Beach mótið sem hefst á PGA-mótaröðinni á fimmtudag. Woods hefur sagt börnunum sínum að þau muni sjá hann oftar í sjónvarpinu eftir því sem hann leikur betur og börnin hvetja hann til dáða.

Spennandi verður að sjá hvernig Woods gengur í öðru móti sínu í ár en hann varð í þriðja sæti í Abu Dhabi Championship mótinu á Evrópumótaröðinni fyrir skömmu. Hann átti lakan lokahring þar sem hann lék á pari og missti af sigrinum.

Þetta var dagur þar sem höggslátturinn var lélegur. Þetta var ekki það slæmt og vonandi held ég áfram að bæta mig. Ef það tekst þá lítur þetta nokkuð vel út.“