Fréttir | þriðjudagur 7. febrúar 2012 | 10:30
Tveir ásar á einum hring hjá Chopra
Sænski kylfingurinn Daniel Chopra náði þeim magnaða árangri að fara tvisvar holu í höggi á sama hringnum þegar hann lék æfingahring á Pebble Beach vellinum í gær. Chopra fékk fór holu í höggi á 7. holu vallarins áður en hann endurtók leikinn á 17. holunni.
Chopra hefði e.t.v. viljað spara ásanna þar til í mótinu sjálfu sem hefst á fimmtudag en það er engu að síður magnað afrek að fara tvisvar holu í höggi á sama hringnum. Samkvæmt rannsókn Golf Digest þá eru líkurnar á því að áhugamaður í golfi fari tvisvar holu í höggi á einum hring einn á móti 64 milljónum. Líkurnar eru öllu betri fyrir Chopra sem er auðvitað atvinnukylfingur og leikur á sterkustu mótaröð heims.
Chopra hefur þrisvar farið holu í höggi á móti á PGA-mótaröðinni og er greinilega laginn við að fara holu í höggi. Ekki fylgir sögunni hversu oft á ferlinum Chopra hefur farið holu í höggi en eflaust bölva einhverjir golfáhugamenn honum fyrir nákvæmi sína, það eru jú auðvitað ekki allir sem ná að slá draumahögg golfsins, hvað þá tvisvar á einum hring.