Hleð inn spilara...
Fréttir | þriðjudagur 7. febrúar 2012 | 08:19
GolfTV: Bestu högg helgarinnar í Phoenix
Það voru mörg frábær tilþrif sem kylfingar sýndu á WM Phoenix Open mótinu sem fram fór um helgina á PGA-mótaröðinni. Bubba Watson og Ben Crane stálu senunni á 16. teig í mótinu þegar þeir tóku lagið fyrir framan æsta aðdáendur á þessari mögnuðu holu á TPC Scottsdale vellinum sem er líklega besta golfhola golfsins út frá sjónarhorni áhorfenda.
Phil Mickelson, Rickie Fowler og sigurvegarinn Kyle Stanley eiga svo bestu högg helgarinnar að mati PGA-mótaraðarinnar en þau má sjá í myndbandinu hér að ofan.
