Hleð inn spilara...
Fréttir | mánudagur 6. febrúar 2012 | 14:51
GolfTV: Hvernig á að slá pitchhögg niður flötina
Besti kylfingur heims, Englendingurinn Luke Donald, kann sitthvað fyrir sér þegar kemur að því að slá pitchhögg. Kylfinga glíma við margar tegundir pitchhögga á golfvellinum og hjálpar það vafalaust að æfa mismunandi högg í stað þess að æfa endalaust högg úr sömu stöðu.
Í myndbandinu hér að ofan kennir Donald okkur hvernig á að slá pitchhögg á flöt sem hallar niður á við. Hann notar 60° fleyjárn, stillir boltanum upp framarlega í stöðuna og slær svo án þess að kylfan fylgi boltanum eftir að fullu.
Þetta kann að líta út fyrir að vera auðvelt þegar Donald gerir þetta en nokkra æfingu þarf til að verða góður í pitchhöggunum í kringum flatirnar.
