Hleð inn spilara...


Fréttir | mánudagur 6. febrúar 2012 | 13:46

GolfTV: Dramatík á lokahringnum í Phoenix


Kyle Stanley vann upp átta högg mun á lokahringnum í Phoenix Open mótinu á PGA-mótaröðinni í gærkvöldi og vann frábæra sigur. Sigurinn var Stanley ekki síst dýrmætur að því leytinu að fyrir viku tapaði hann í bráðabana í Farmers Insurance Open mótinu eftir að hafa verið með þriggja högga forystu fyrir lokaholuna í mótinu.

Í gær lék hann á alls oddi og tryggði sér sinn fyrsta sigur á ferlinum. Spencer Levin, sem hafði sex högga forystu fyrir lokahringinn, fór algjörlega á taugum og lék lokahringinn á 75 höggum eða fjórum höggum yfir pari.

Samantekt frá lokahringnum má sjá í myndbandinu hér að ofan.


Kyle Stanley hefur leikið frábærlega að undanförnu.