Fréttir | mánudagur 6. febrúar 2012 | 13:11
Pálmi nýr formaður Golfklúbbs Húsavíkur
Aðalfundur Golfklúbbs Húsavíkur var haldinn á laugardag, 4. febrúar og mættu 25 manns á fundinn. Þar sem ekki náðist að klára reikninga klúbbsins í tæka tíð þá þarf að halda annan fund og fara yfir reikningana.
Kosið var í nokkur embætti, lesnar skýrslur formanns og nefnda. Tilllögu stjórnar um gjaldskrárbreytingar var frestað, verður hún tekinn til umræðu á framhaldsfundinum.
Pálmi Pálmason var kosinn nýr formaður GH en hann tekur við embættinu af Önnu Rúnu Mikaelsdóttur sem verið hefur formaður klúbbsins undanfarin ár. Sólveig Skúladóttir var kjörin varaformaður, Ásdís Jónsdóttir var kjörin gjaldkeri og með þeim í stjórn verða Kristinn Vilhjálmsson og Harpa Gunnur Aðalbjörnsdóttir.
Jóhanna Guðjónsdóttir var kosinn formaður mótanefndar og Einar Halldór var kosinn formaður húsnefndar. Fráfarandi stjórn og formönnum nefnda eru þökkuð góð störf.
Mynd/ghgolf.is: Anna Rúna Mikaelsdóttir steig úr embætti formanns GH en í hennar stað kemur Pálmi Pálmason.
www.ghgolf.is