Fréttir | mánudagur 6. febrúar 2012 | 12:08

Lawrie og Stanley á uppleið upp heimslistann


Skotinn Paul Lawrie er kominn í 47. sætið á heimslistanum eftir góðan sigur sinn á Qatar Masters mótinu sem lauk í gær á Evrópumótaröðinni. Hann fer upp um 31 sæti á milli vikna og er þetta í fyrsta sinn í langan tíma sem Lawrie kemst aftur upp í topp-50 á heimslistanum.

Bandaríkjamaðurinn Kyle Stanley er á mikilli siglingu upp heimslistann og er kominn í 52. sæti eftir magnaðan sigur á Phoenix Open mótinu í gær. Hann fer upp um 35 sæti á milli vikna og gæti náð sæti á Masters mótinu fari svo að hann haldi áfram að leika vel.

Luke Donald er sem fyrr í efsta sæti listans og eru litlar líkur á því að hann missi efsta sætið á næstunni nema ef Rory McIlroy og Lee Westwood vinni stór mót. Tiger Woods er í 18. sæti listans en hann verður meðal keppenda í Pebble Beach mótinu sem fram fer um næstu helgi á PGA-mótaröðinni.

Staða efstu kylfinga á heimslistanum:
1. Luke Donald 9.59 stig
2. Rory McIlroy 7.86
3. Lee Westwood 7.54
4. Martin Kaymer 6.10
5. Steve Stricker 5.74
6. Webb Simpson 5.30
7. Jason Day 5.17
8. Adam Scott 5.07
9. Charl Schwartzel 5.00
10. Dustin Johnson 4.78
11. Graeme McDowell 4.60
12. Matt Kuchar 4.49
13. Nick Watney 4.36
14. KJ Choi 4.23
15. Brandt Snedeker 4.01
16. Sergio Garcia 3.97
17. Phil Mickelson 3.84
18. Tiger Woods 3.79
19. Bubba Watson 3.67
20. Justin Rose 3.65