Fréttir | mánudagur 6. febrúar 2012 | 00:25

Mögnuð endurkoma hjá Stanley - Sigraði í Phoenix


Bandaríski kylfingurinn Kyle Stanley stimplaði sig rækilega í gegn á PGA-mótaröðinni í gærkvöldi þegar hann fór með sigur af hólmi í Phoenix Open mótinu. Stanley, sem glutraði niður þriggja högga forystu á lokaholunni á Farmers Insurance Open mótinu um síðustu helgi og tapaði í bráðabana, lék samtals á 15 höggum undir pari og varð einu höggi á undan ærslabelgnum Ben Crane. Þetta er hans fyrsti sigur á mótaröðinni.

Stanley lék glimrandi golf á lokakeppnisdeginum og kom í hús á 65 höggum eða sex höggum undir pari. Það reyndist nóg til sigurs þar sem Spencer Levin, sem hafði sex högga forystu fyrir lokahringinn, fór á taugum og lék lokahringinn á 75 höggum eða fjórum höggum yfir pari. Levin varð að sætta sig við þriðja sætið í mótinu en hann átti sigurinn vísan að flestra mati.

Þetta er ótrúleg tilfinning og ég er mjög þakklátur fyrir allan þann stuðning sem ég fékk eftir síðustu viku. Ég sætti mig við það að þessi leikur færir manni hæðir og lægðir. Ég er hvort sem er með slæmt minni,“ sagði kátur Stanley. „Ég hef leikið frábært golf undanfarnar tvær vikur og ég vildi halda áfram að leika gott golf og ég gerði það.“

Lokastaðan í mótinu