Fréttir | mánudagur 6. febrúar 2012 | 07:42

Ólafur lék lokahringinn í Georgíu á 80 höggum


Ólafur Björn Loftsson úr Nesklúbbnum lék lokahringinn á Jones Cup Invitational mótinu á 80 höggum eða átta höggum yfir pari. Hann lauk keppni í mótinu í 75. sæti af 90 keppendum í þessu sterka áhugamannamóti og varð samtals á 24 höggum yfir pari.

Ólafur hóf leik á lokahringnum á 10. teig og lék hann sínar fyrri níu holur á einu höggi yfir pari. Honum gekk hins vegar ekki sem skildi á seinni níu holunum sem hann lék á sjö höggum yfir pari.

Bandaríkjamaðurinn Justin Thomas sigraði í mótinu en hann lék samtals á pari. Leiknir voru þrír hringir í mótinu sem fram fór á Ocean Forest vellinum í Georgíuríki í Bandaríkjunum. Ólafur Björn fékk boð í mótið sem þykir eitt sterkasta áhugamannamót sem fram fer í heiminum á ári hverju.

Ólafur Björn er í miðjum sveiflubreytingum um þessar mundir og því gefur frammistaða hans e.t.v. ekki rétta mynd af hæfileikum Ólafs á golfvellinum en hann varð fyrsti íslenski kylfingurinn til að leika á PGA-mótaröðinni síðastliðið sumar. Ólafur, sem er 24 ára gamall, er á lokaári sínu með Charlotte háskólanum og ætlar að gerast atvinnumaður í sumar.

Lokastaðan í mótinu