Fréttir | mánudagur 6. febrúar 2012 | 09:07
Fugl á lokaholunni tryggði Boeljon sigur í Ástralíu
Christel Boeljon frá Hollandi fagnaði sigri í Australian Ladies Masters mótinu sem lauk í gær á Royal Pines vellinum á Evrópumótaröð kvenna. Hún lék samtals á 21 höggi undir pari og varð einu höggi á undan þeim Ryu So-yeon, Kim Ha-neul og Diana Luna sem urðu jafnar í öðru sæti.
Ryo hóf daginn með þriggja högga forystu en hún átti ótrúlegan hring á föstudag þegar hún lék á 61 höggi eða ellefu höggum undir pari sem var besti hringurinn í mótinu. Það dugði þó ekki til sigurs þegar upp var staðið.
Boeljon fékk fugl á lokaholunni í mótinu til að tryggja sér sinn annan sigur á Evrópumótaröðinni.
Lokastaðan í mótinu