Hleð inn spilara...
Fréttir | laugardagur 4. febrúar 2012 | 17:02
GolfTV: Donald og Kaymer í stórri glompu
Englendingurinn Luke Donald og Þjóðverjinn Martin Kaymer tóku þátt í því að kynna golfið í Mið-Austuröndum með því að skella sér í eyðimörkina til að slá nokkra golfbolta. Þeir voru fluttir af golfvellinum í Abu Dhabi út í eyðimörkina þar sem þeir voru myndaðir í bak og fyrir við að slá golfbolta úr allsvakalega stórri glompu.
Þeim Donald og Kaymer hefur væntanlega ekki leiðst að taka þátt í þessu verkefni enda ekki á hverjum degi sem þú færð tækifæri á því að slá golfbolta í miðri eyðimörk.
Í myndbandinu hér að ofan má sjá skemmtilega samantekt frá ævintýrum Donald og Kaymer.
