Fréttir | laugardagur 4. febrúar 2012 | 08:31

Erfið byrjun hjá Ólafi Birni í Georgíu


Ólafur Björn Loftsson úr Nesklúbbnum hóf í gær keppni á Jones Cup Invitational áhugamannamótinu sem fram fer á Ocean Forest vellinum í Georgíuríki, Bandaríkjunum. Ólafur lék fyrsta hringinn á 83 höggum eða ellefu höggum yfir pari og er í 60. sæti af 90 keppendum.

Kalt var í veðri í gær og talsverður vindur sem gerði kylfingum í mótinu erfitt fyrir. Meðalskorið á fyrsta keppnisdegi var 79 högg. Ólafur fór illa af stað og tapaði fjórum höggum á fyrstu fjórum holunum. Hann fékk tvo fugla á hringnum.

Mótið er eitt sterkasta áhugamannamót sem fram fer árlega. Þekktir áhugamenn á borð við Bryden Macpherson taka þátt í mótinu en hann fór með sigur af hólmi í Opna breska áhugamannamótinu síðasta sumar. Hann lék á 81 höggi sem sýnir kannski hve erfiðar aðstæður voru á hringnum í gær.

Curtis Thompson frá Bandaríkjunum er í efsta sæti en hann lék á 70 höggum í gær eða tveimur höggum undir pari. Aðeins tveir kylfingar léku undir pari á fyrsta hring og skor mjög hátt eins og áður hefur komið fram. Annar hringurinn verður leikinn í dag og mótinu lýkur á morgun.

Staðan í mótinu