Fréttir | föstudagur 3. febrúar 2012 | 17:15

Heill ráshópur fékk frávísun í Ástralíu


Þrír kylfingar í sama ráshópi í Australian Ladies Masters mótinu á Evrópumótaröð kvenna fékk frávísun í upphafi annars hrings eftir að hafa brotið af sér á fyrsta hring. Þær Corie Hou og Inhong Lim frá Ástralíu léku ásamt Annie Choi frá Suður-Kóreu og höfðu aðeins leikið eina holu á öðrum hring þegar það kom í ljós að þær höfuð brotið reglur á fyrsta hring og fengu því allar frávísun.

Þær misskildu staðarreglur sem voru settar í mótinu vegna mikillar bleytu á Royal Pines vellinum. Kylfingar máttu stilla upp boltum á brautum eins og oft er leyft í bleytu. Ráshópurinn hélt hins vegar að það mætti færa boltann alls staðar á vellinum þar sem völlurinn var mjög blautur.

Hin 16 ára Choi lék fyrsta hringinn á 70 höggum eða tveimur höggum og segir að ráshópurinn hafi misskilið regluna. „Ég er eyðilögð yfir þessu en ég tek þessari ákvörðun,“ sagði Choi eftir hringinn.

Það verður að segjast eins og er að þetta er afar klaufaleg mistök enda er það sjaldheyrt að það sé sett í staðarreglur að það megi stilla boltanum upp allsstaðar á vellinum. Það er algengt á brautum þegar völlur er mjög blautur.