Fréttir | föstudagur 3. febrúar 2012 | 13:46

Qatar Masters stytt í 54 holur - Daly aftur efstur


Qatar Masters mótið á Evrópumótaröðinni hefur verið stytt niður í 54 holur eftir keppni á öðrum keppnisdegi riðlaðist vegna vinds. Ákveðið var að slá af keppni eftir hádegi í dag en þá höfðu fáir kylfingar komist mikið áleiðis á öðrum hring sínum.

Þetta kemur sér vel fyrir John Daly sem er aftur orðinn efstur í mótinu á samtals fimm höggum undir pari. Hann náði ekki að hefja leik á öðrum hring í dag en Spánverjinn Gonzalo Fernandez-Castaño fékk skolla á tvær af fyrstu fimm holum sínum á öðrum hring en keppni var svo frestað skömmu síðar.

Völlurinn var á barmi þess að vera óleikhæfur og þá sáum við enga ástæðu til að senda kylfinga út á völl í tvær klukkustundir. Vindurinn verður minni á morgun og spáin fyrir sunnudag er góð,“ sagði David Probyn, mótsstjóri.

Staðan í mótinu