Fréttir | föstudagur 3. febrúar 2012 | 13:18
Íslendingarnir úr leik í Tyrklandi - Stefán Már lék veikur
Íslensku kylfingarnir Stefán Már Stefánsson og Þórður Rafn Gissurarson úr GR eru úr leik í Sueno Pines Classic mótinu sem fram fer í Tyrklandi á þýsku EPD-mótaröðinni. Þórður Rafn lék annan hringinn á 79 höggum í dag eða sjö höggum yfir pari og var nokkuð frá því að komast í gegnum niðurskurðinn.
Stefán Már varð að hætta keppni á miðjum hring í dag en hann reyndi að leika veikur í dag með döprum árangri. Stefán lék átta holur í dag áður en hann játaði sig sigraðan og hætti keppni. Hann glímir við magakveisu sem kom í veg fyrir að hann gæti sýnt sitt rétta andlit í dag.
Fyrstu fjögur mót ársins á EPD-mótaröðinni fóru fram í Tyrklandi en nú tekur við tveggja vikna frí hjá íslensku kylfingunum. Þeir munu næst leika í nokkrum mótum í Marokkó sem hefjast þann 20. febrúar en alls verða leikinn sex mót í Marokkó.
Staðan í mótinu í Tyrklandi