Fréttir | föstudagur 3. febrúar 2012 | 12:33

GHD opnar nýja heimasíðu - Endursamið við Heiðar Davíð


Golfklúbburinn Hamar hefur opnað nýja heimasíðu á slóðinni; www.ghdgolf.net. Á síðunni er að finna ýmsar upplýsingar um klúbbinn og fréttir úr starfinu. Síðan er hugsuð sem vettvangur fyrir félagsmenn til að fylgjast með því sem er á döfinni og til að auka upplýsingaflæði frá stjórn klúbbsins til hins almenna félaga og einnig til að golfáhugamenn um land allt geti fylgst með því öfluga starfi sem fram fer hjá GHD.

Golf er í mikilli sókn í Dalvíkurbyggð og er það von okkar að ný heimasíða styðji enn frekar við útbreiðslu golfsins og veki áhuga fólks á því að ganga í klúbbinn. Þá auðveldar hún fjölmiðlum aðgang að upplýsingum um það sem er að gerast hjá klúbbnum og stuðlar þannig að frekari kynningu á golfi í Dalvíkurbyggð.

Endursamið við Heiðar Davíð


Laugardaginn 4. febrúar verður skrifað undir samning við Heiðar Davíð Bragason yfirþjálfara GHD. Undirskriftin fer fram í inniaðstöðunni kl. 11. Í tilkynningu frá GHD segir að það sé mikið gleðiefni að hafa nú tryggt klúbbunum starfskrafta þessa öfluga þjálfara og mun hann nú taka við keflinu af Árna Jónssyni sem þjálfað hefur hjá klúbbnum undanfarin ár með frábærum árangri.

Síðustu ár hefur Heiðar verið Árna til aðstoðar við þjálfunina en tekur við og mun hafa umsjón með þjálfun allra flokka næstu árin. GHD hvetur félaga til að fjölmenna á púttmót á laugardagsmorguninn og vera viðstadda þegar samningurinn verður undirritaður.

www.ghdgolf.net