Hleð inn spilara...
Fréttir | föstudagur 3. febrúar 2012 | 12:26
Palmer efstur í Phoenix
Bandaríski kylfingurinn Ryan Palmer hefur nauma forystu eftir fyrsta hring á Waster Management Phoenix Open mótinu sem fram fer á hinum fræga TPC Scottsdale velli á PGA-mótaröðinni. Palmer lék á 64 höggum í gær eða sjö höggum undir pari og hefur eins höggs forystu á Webb Simpson sem er annar.
Fresta þurfti leik um morguninn vegnar næturfrosts og náðu því ekki allir keppendur að ljúka leik. Það var orðið verulega dimmt þegar Palmer lauk leik í gær.
„Síðustu fjórar holurnar þá fann maður fyrir myrkrinu en ég reyndi að hugsa ekki um það. Ég hélt bara áfram að hugsa um minn leik og mitt leikskipulag,“ sagði Palmer eftir hringinn í gær.
Bubba Watson átti góðan fyrsta keppnisdag og var á fimm höggum undir pari þegar hann átti þrjár holur eftir. Phil Mickelson var með nýjan pútter á fyrsta hring í mótinu og lék á 68 höggum eða þremur höggum undir pari.
Staðan í mótinu
