Fréttir | fimmtudagur 2. febrúar 2012 | 19:57
Stefán Már í 14. sæti eftir fyrsta hring
Stefán Már Stefánsson og Þórður Rafn Gissurarson, kylfingar úr GR, hófu í dag keppni á Sueno Pines Classic mótinu á þýsku EPD-mótaröðinni en leikið er í Tyrklandi. Stefán lék á 71 höggi í dag eða einu höggi undir pari og er í 14. sæti eftir fyrsta hring.
Stefán var best kominn á þrjú högg undir pari þegar skammt var eftir. Hann lék hins vegar tvær síðustu holurnar á skolla og tapaði þar því tveimur höggum.
Þórður Rafn er á tveimur höggum yfir pari en hann hefur lokið 17 holum í mótinu. Hann er í kringum 40. sæti í mótinu og þarf að leika gott golf á morgun til að komast í gegnum niðurskurðinn. Efstu 40 kylfingarnir í mótinu komast áfram og leika á lokahringnum.
Þetta er fjórða mótið á skömmum tíma sem þeir félagar Þórður Rafn og Stefán Már leika í á EPD-mótaröðinni. Mótið fer fram á Sueno Pines vellinum í Tyrklandi en hlé verður gert á mótaröðinni í um tvær vikur og færast leikar til Marokkó.
Staðan í mótinu