Fréttir | fimmtudagur 2. febrúar 2012 | 15:20
Fernandez-Castano skaust upp fyrir Daly í Qatar
Spánverjinn Gonzalo Fernandez-Castano er efstur eftir fyrsta hring á Qatar Masters mótinu sem fram fer á Evrópumótaröðinni. Fernandez-Castano lék á 66 höggum í dag eða sex höggum undir pari og náði fyrir vikið forystunni í mótinu. Hann er einu höggi á undan John Daly frá Bandaríkjunum sem er óvænt í toppbaráttunni.
Þremur mánuðum eftir að hafa stormað af velli í Australian Open mótinu þegar hann sló sjö boltum í vatn á annarri holu sinni í mótinu og tæmdi boltahólfið þá er hann kominn í baráttuna. Daly er 45 ára gamall og er eftirlæti margra golfáhugamanna, aðallega vegna litríks golfferilsins, innan sem utan vallar.
K.J. Choi og Jason Day deila þriðja sætinu í mótinu en þeir eru samtals á 68 höggum eða fjórum höggum undir pari. Martin Kaymer lék á 71 höggi og þeir Sergio Garcia og Lee Westwood léku á 72 höggum í dag eða á pari. Daninn Thomas Björn var í tjóni í dag og lék á 80 höggum eða átta höggum yfir pari. Hann kemst líklega ekki í gegnum niðurskurðinn á morgun.
Staðan í mótinu