Fréttir | fimmtudagur 2. febrúar 2012 | 14:41
Sigurjón endurkjörinn formaður GSG - 7,3 milljóna hagnaður
Aðalfundur Golfklúbbs Sandgerðis fór fram í gærkvöldi og mættu um 30 félagsmenn á fundinn. Töluverð endurnýjun varð í stjórn GSG. Formaðurinn Sigurjón Gunnarsson gaf kost á sér til áframhaldandi starfa og var hann einróma kosin til eins árs.
Ársreikningar voru samþykktir með 7,3 milljóna kr.- hagnaði og skýrist það einna helst á styrk frá Sandgerðisbæ vegna vélakaupa en klúbburinn keypti vélar fyrir 6,3 milljónir kr.- Félagafjöldi stóð nánast í stað á milli ára en skráðir félagar í GSG eru í dag 211 en það er svipaður fjöldi og hefur verið síðustu ár.
Almenn hækkun á félagsgjöldum var samþykkt 5.000 kr.- og fer þá einstaklingsgjald fullorðna í 50.000 kr.- Hjónagjald fer í 70.000 og 67 ára og eldri greiða 25.000 kr.- Nokkur umræða var um kostað við áburðarkaup og lagt var til að sendur yrði út valgreiðsluseðill uppá 2.500 kr.- til að standa straum af áburðakaupum.
Kosið var um tvo stjórnarmenn til tveggja ára og þeir sem kosnir voru eru: Erla Jóna Hilmarsdóttir og Ásgeir Eiríksson. Hafþór B. Birgisson gaf ekki kost á sér áfram og í hann stað var kosinn Kristinn E. Jónsson til eins árs. Varamenn voru kosnir: Sigríður Erlingsdóttir og Sigurður Kristjánsson
Stjórn GSG er skipuð eftirfarandi:
Formaður: Sigurjón Gunnarsson, aðrir; Erla Jóna Hilmarsdóttir, Ásgeir Eiríksson, Skafti Þórisson, Kristinn E. Jónsson.Varamenn voru kosnir Sigríður Erlingsdóttir og Sigurður Kristjánsson.
Þeir sem hættu í stjórn voru Benedikt Gunnarsson, Sturla Þórðarson og Hafþór B. Birgisson. Þessum aðilum voru þökkuð góð störf í gegnum árin en þess má geta að Benedikt er búinn að sitja í stjórn GSG nánast frá stofnum klúbbsins.

Sigurjón Gunnarsson verður áfram formaður Golfklúbbs Sandgerðis. Kirkjubólsvöllur stækkaði í 18. holur á síðasta ári.

Það eru margar skemmtilegar golfholur á Kirkjubólsvelli.