Hleð inn spilara...
Fréttir | fimmtudagur 2. febrúar 2012 | 14:13
Daly: „Einn af mínum bestu hringjum“
John Daly var mjög sáttur með frammistöðu sína á fyrsta hringnum í Qatar Masters mótinu sem hófst í dag á Evrópumótaröðinni. Daly lék á 67 höggum eða fimm höggum undir pari við mjög vindasamar aðstæður.
„Þetta voru hrikalega aðstæður, það kemur sjálfum mér á óvart að ég skuli hafa leikið á 67 höggum í dag. Ég er búinn að vera í fimm vikna fríi og hef varla snert golfkylfu. Ég er mjög ánægður með þessa byrjun í fyrsta móti ársins. Þetta er líklega einn af mínum bestu hringjum,“ sagði Daly eftir hringinn í dag en hann ætlar að leika meira á Evrópumótaröðinni í ár en á undanförnum árum.
„Ég ætla að spila meira á Evrópumótaröðinni í ár og að reyna að vinna mér inn fullan keppnisrétt á mótaröðinni í ár. Markmiðið er að vera í topp-60 á tekjulistanum.“

John Daly var sáttur með frammistöðu sína í Qatar í dag. Hér er hann á gangi í eyðimörkinni.