Fréttir | fimmtudagur 2. febrúar 2012 | 11:51
Haney við Tiger: „Lestu bókina áður en þú gagnrýnir hana“
Sveifluþjálfarinn Hank Haney hefur svarað fyrir gagnrýni sem hann varð fyrir frá Tiger Woods um bók sem Haney mun gefa út um tíma sinn með Woods. Bókin heitir „The Big Miss“ og kemur út í lok mars. Woods sagði að það væri ófagmannlegt af Haney að gefa bókina út og segir hann bara á eftir peningum.
„Ég tel þetta vera sanngjarna og heiðarlega bók. Hann segir að þetta sé ófagmannlegt en ég veit ekki hvernig hann getur sagt svona án þess að hafa lesið bókina. Ég átti tækifæri á því að skrifa bók með ófagmannlegum hætti en ég gerði það ekki,“ sagði Haney sem bætir þó við að það sé margt sem eigi eftir að koma á óvart í bókinni.
„Sannleikurinn er sannleikurinn. Það eru nokkrir hlutir í bókinni sem á eftir að koma fólki á óvart. Ég sagði það frá upphafi að þetta væri ekki bók skrifuð gegn Woods og fólk sem þekkir mig veit að það er eitthvað sem ég myndi ekki gera.“