GS_opindagur.leiran.2012mai


Fréttir | fimmtudagur 2. febrúar 2012 | 08:04

Mickelson kærir netfyrirtæki fyrir svívirðilegan orðróm


Bandaríski kylfingurinn Phil Mickelson hefur höfðað mál gegn internetfyrirtæki vegna ummæla sem notendur settu fram um einkalíf hans á spjallsvæðum, t.d. hjá Yahoo!. Það sem Mickelson vill ná fram með kæru sinni er að nöfn notenda sem skrifuðu undir dulnefninu ‚Fogroller‘ og ‚Longitude‘ verði gefinn upp.

Mickelson kærði fyrirtækið Videotron S.E.N.C. fyrir dómstóla í Quebec í Kanada vegna þeirra ummæla sem netnotendur fyrirtækisins létu flakka á netinu. „Ummælin gefa til kynna að hann eigi óskilgetið barna, að eiginkona hans eigi í framhjáhaldi og önnur svipuð ummæli sem eru algjörlega úr lausu lofti gripnar og einu orði svívirðileg,“ segir í stefnu Mickelson.

Verjandi Videotron segir að það þurfi úrskurð dómstóla áður en fyrirtækið gefur upp nöfn þessara einstaklinga samkvæmt upplýsingalögum. Fróðlegt verður að sjá hvernig málið fer en hér á Íslandi hafa nýlega komið upp svipuð mál þar sem internetnotendur hafa verið kærið fyrir ummæli sín, hvort sem það hefur verið undir nafni eður ei.