Fréttir | miðvikudagur 1. febrúar 2012 | 20:39
Ekki furða að maður sé einhleypur - Konur hvar eruð þið?
-Eftirfarandi grein skrifaði Ólafur Magni Sverrisson sem birtist í Fréttablaði Suðurlands-
Aðalfundur Golfklúbbs Selfoss (GOS) var haldinn þann 26. janúar síðastliðinn og í fyrsta skipti í þau fimmtán ár sem ég hef setið þessa fundi var mér brugðið yfir upplýsingunum sem komu þar fram. Mér var ekki brugðið yfir hefðbundnum hallarekstri á klúbbnum né stöðugri óvissu um fyrirhugaða brúarsmíð yfir Ölfusá. Það sem sló mig nánast í rot var sú staðreynd að á árinu 2011 var aðeins ein kona á aldrinum 22-40 ára skráð í GOS. Það þýðir að aðeins einni konu á aldrinum 22-40 ára á öllu Árborgarsvæðinu, sem telur um 8.000 íbúa í það heila, datt í hug að það gæti verið góð hugmynd að skrá sig í Golfklúbb Selfoss.
Á árum áður í illa upplýstum samfélögum var konum meinaður aðgangur að golfklúbbum en það á ekki við í dag og sannarlega ekki á Íslandi nútímans. Því fer maður að velta fyrir sér hver ástæðan fyrir þessu geti verið og persónulega sé ég ekki neina haldgóða ástæðu fyrir því að þið, kæru konur, stúlkur og dömur, ættuð ekki að skella ykkur í golf. Sumar ykkar gætuð haldið því fram að golf sé einfaldlega bara púkó en ég get fullvissað ykkur um það að tíska er svo sannarlega til staðar í golfinu þannig að ekkert er til fyrirstöðu að þið getið verið fínar og flottar á golfvellinum. Kostnaður gæti verið önnur ástæða en árgjald í GOS er allt að helmingi lægra en gengur og gerist á Reykjavíkursvæðinu þar sem kvennastarf blómstrar og einnig er boðið uppá sérstakt hjónagjald svo pör geti stundað íþróttina saman.
Golf er góð íþrótt uppfull af útiveru, hreyfingu, góðum félagsskap og svo ekki sé talað um að vera frábært fjölskyldusport. Undirritaður hvetur því allar konur, á öllum aldri, að bæta því við áramótaheitið hjá sér að prufa að slá nokkrar golfkúlur á komandi sumri. Vinkonuhópar, saumaklúbbar og vinnustaðir geta jafnvel hópast saman og gefið þessari fínu íþrótt það tækifæri sem hún á skilið. Hlynur Geir Hjartarson er frábær golfkennari sem getur kennt byrjendum allt sem þarf að kunna til að geta tekið fyrstu skrefin í átt að framtíðar áhugamáli. Ég get einnig fullvissað ykkur um að meðlimir GOS munu taka ykkur opnum örmum og þessi eina verður örugglega dauðfegin að sjá ykkur.
Ólafur Magni Sverrisson. Greinarhöfundur er meðlimur í golfklúbbi, ekki karlakór.
Heimasíða Fréttablaðs Suðurlands