GS_opindagur.leiran.2012mai


Fréttir | miðvikudagur 1. febrúar 2012 | 18:02

Rock: „Munum sjá marga sigra hjá Tiger í viðbót“


Robert Rock á von á því að Tiger Woods muni fljótlega fara að vinna aftur stór golfmót. Rock hafði betur gegn Woods í Abu Dhabi Championship mótinu um síðustu helgi og býst við stórum hlutum af fyrrum besta kylfingi heims.

Þetta var frábær vika fyrir mig og ég var fyrst og fremst spenntur fyrir því að leika með Woods á lokahringnum. Að vinna var ótrúlegt,“ sagði Rock.

Ég held að það sé ekki spurning um að Woods muni vinna stór mót á ný. Lokahringurinn fór ekki alveg eins og hann hafði vonast eftir en hann lék mjög vel fyrstu þrjá keppnisdagana. Tölfræðin á þeim hringjum sannar að sveiflan er á réttri leið. Ég held að við eigum eftir að sjá marga sigra hjá Tiger í viðbót. Það er frábært að spila með honum, gaf mér hrós fyrir góð högg og það hjálpaði.“

Rock er 34 ára gamall en Woods varð 36 ára síðastliðinn desember. Það er aldrei að vita nema að Rock slái í gegn á þessari leiktíð en fyrir um áratug starfaði hann sem golfkennari í litlum golfklúbbi á Englandi. Mikið vann hefur runnið til sjávar síðan þá.