Hleð inn spilara...
Fréttir | miðvikudagur 1. febrúar 2012 | 15:02
GolfTV: Tíu bestu reiðiköstin í atvinnugolfinu
Flestir kylfingar eiga það til að láta reiði sína í ljós á golfvellinum þegar þeir framkalla slæm golfhögg. Það dylst engum sem spilar golf að það getur reynt á þolinmæðina að spila þessa göfugu íþrótt sem er síður en svo auðveld.
Í myndbandinu hér að ofan má sjá tíu bestu reiðiköstin sem kylfingar hafa tekið í atvinnugolfinu á liðnum árum. Spánverjinn Sergion Garcia er á meðal þeirra sem á oft í erfiðleikum með að hemja skap sitt og kemst hann tvívegis á listann að þessu sinni. Garcia er í efsta sæti fyrir að láta golfskó sinn fá það óþvegið.
