GS_opindagur.leiran.2012mai


Fréttir | miðvikudagur 1. febrúar 2012 | 14:10

Golfkennsla: Donald kennir okkur rétta gripið


Í nýjasta myndbandinu frá Luke Donald og Mizuno golffyrirtækinu skýrir besti kylfingur heims okkur frá mikilvægi þess að vera með rétt grip. Hann segir að þegar hann var yngri að þá hafi hann verið með sterkara grip sem þýðir að hægri hönd hans var meira undir skaftinu vinstri höndin meira til hægri. Það gerði hann til að fá meiri lengd út úr teighöggum sínum.

Leikur hans hefur hins vegar blómstrað eftir að hann færði sig yfir í veikara grip því það hefur gefið honum meiri stjórn á leik sínum. Hann segir að gripið sé líklega mikilvægasti þáttur leiksins.