Fréttir | miðvikudagur 1. febrúar 2012 | 10:26

McIlroy æfir drævin stíft


N-Írinn Rory McIlroy ætlar sér stóra hluti á þessu ári og gat sjálfum sér um kennt að hann fór ekki með sigur af hólmi í Abu Dhabi Championship mótinu sem lauk um síðustu helgi. McIlroy varð tveimur höggum á eftir Englendingnum Robert Rock sem fór með sigur af hólmi. McIlroy fékk á sig klaufalegt tveggja högga víti á öðrum keppnisdegi sem hefði líklega komið honum í bráðabana um sigurinn.

Það eru einnig drævin sem eru að trufla þennan 22 ára kylfing en hann var ekki að hitta brautirnar nógu vel í sínu fyrsta móti í ár. „Ég mun halda áfram að vinna í drævunum og reyna að bæta sveifluferlið. Ég bætti mig á hverjum degi í Abu Dhabi og á lokahringnum missti ég ekki braut þar til á 11. braut. Ég sé framfarir en þarf að bæta mig meira.“

Næsta mót hjá McIlroy er Dubai Desert Classic mótið sem fram fer í næstu viku á Evrópumótaröðinni. Hann á góðar minningar úr mótinu en í því móti vann hann sinn fyrsta sigur sem atvinnumaður. Margir hafa einnig tekið eftir því að McIlroy er mun þreknari en hann var áður og skýrist það að mestu leyti á því að hann hefur verið gríðarlega duglegur í ræktinni á undanförnum mánuðum og hefur styrkt sig mikið.