Fréttir | miðvikudagur 1. febrúar 2012 | 08:30
Els fór til augnsérfræðings til að bæta púttin
Ernie Els frá Suður-Afríku gerir nú hvað hann getur til að bæta frammistöðu sína á flötunum sem hefur ekki verið upp á marga fiska að undanförnu. Hann er farinn að nota magapútter (e. bellypútter) og hefur einnig farið til augnsérfræðings til að finna lausnir á vandamálum sínum. Það er kannski ekki skrítið að Els vilji bæta sig því hann varð í 181. sæti á PGA-mótaröðinni á síðustu leiktíð yfir fæst pútt.
„Við höfum verið að vinna í nokkrum hlutum með augun á mér og ég sé margt jákvætt. Það er kannski klisja að segja það en þetta hefur opnað augun mín fyrir púttunum. Það koma fram margar góða minningar frá því að ég var einn besti kylfingur heims í púttunum á 10. áratugunum og í kringum aldamótin. Ef ég bæti púttin þá fer ég að vinna mót á ný,“ sagði Els.
Þessi flinki kylfingur sem kallaður er ‚Big Easy‘ er í 59. sæti á heimslistanum og þarf nauðsynlega að bæta sig til að fá keppnisrétt í Masters mótið í apríl.