Fréttir | þriðjudagur 31. janúar 2012 | 17:29

Auðunn ráðinn golfkennari og vallarstjóri


Golfklúbbur Ísafjarðar hefur ráðið Auðun Einarsson PGA-kennara sem golfkennara og vallarstjóra við golfvöllinn í Tungudal. Markmið klúbbsins með ráðningu Auðuns er að leggja sérstaka áherslu á þjálfun barna og unglinga í golfi. Auðunn mun, auk barna- og unglingastarfsins, sjá um æfingar fyrir félagsmenn GÍ og verða með kennslu fyrir fullorðna. GÍ hefur fengið til afnota efstu hæð Sundhallarinnar þar sem klúbbfélagar eru að útbúa aðstöðu fyrir inniæfingar. Þar verður hægt að pútta á púttvelli og slá í net.

Inni æfingar hjá golfklúbbnum hefjast á morgun. Hægt er að skrá sig á netfanginu audunngolf@gmail.com. Nýir félagar eru ávallt velkomnir í Golfklúbbinn en skráning nýrra félaga er á gi@snerpa.is. Í kvöld verður opið hús frá kl.19-21 í nýju æfingaaðstöðunni í Sundhöllinni. „Allir eru velkomnir að kynna sér aðstöðuna,“ segir í tilkynningu.

Mynd og heimild/BB.is: Tryggvi Sigtryggsson, formaður Golfklúbbs Ísafjarðar og Auðunn Einarsson er gengið var frá ráðningunni.

www.bb.is