Fréttir | þriðjudagur 31. janúar 2012 | 15:18
Stanley: „Veit ekki hvað ég var að hugsa“
Bandaríski kylfingurinn Kyle Stanley er staðráðinn í að snúa sterkari tilbaka eftir ótrúlegt klúður sitt í Farmers Insurance Open mótinu á PGA-mótaröðinni um helgina. Hann var mest með sjö högga forystu á lokahringnum og virtist svo gott sem vera búinn að tryggja sér sigurinn þegar hann var með þriggja högga forystu fyrir lokaholuna.
Hann gerði sig sekan um slæm mistök þegar hann lék lokaholuna á átta höggum eða þremur höggum yfir pari og tapaði svo í bráðabana fyrir landa sínum Brandt Snedeker.
„Það er mjög erfitt að kyngja þessari niðurstöðu. Ég veit að ég mun koma sterkari tilbaka, ég hef ekki áhyggjur af því. Ég þarf að vera þolinmóður. Eitt af markmiðum mínum í ár var að koma mér í toppbaráttuna og mér hefur tekist það,“ sagði Stanley sem var svo beðinn um að lýsa lokaholunni örlagaríku þar sem allt fór úrskeiðis.
„Ég var að reyna að leggja upp nálægt holunni. Ég hélt í fyrstu að þetta hefði verið mjög gott högg en svo var of mikill spuni á boltanum. Þegar ég lít tilbaka þá veit ég ekki hvað ég var að hugsa. Þetta er frekar einföld par-5 hola. Ég gæti líklega spilað þessa holu þúsund sinnum og án þess að spila hana á átta höggum.“