Hleð inn spilara...
Fréttir | þriðjudagur 31. janúar 2012 | 13:37
GolfTV: Bestu högg helgarinnar á Torrey Pines
Farmers Insurance mótið á PGA-mótaröðinni fór fram á Torrey Pines vellinum í Kaliforníu um síðustu helgi. Í myndbandinu hér að ofan má sjá fimm bestu högg helgarinnar í þessu móti sem fékk heldur betur dramatískan endi.
Fimmta besta högg helgarinnar á sigurvegarinn í mótinu, Brandt Snedeker, en hann fékk afar góðan fugl á 18. holunni á lokahringnum sem að lokum tryggði honum sæti í bráðabana um sigurinn. Ástralinn Greg Chalmers á fjórða besta höggið fyrir langt pútt fyrir erni.
John Hun varð í þriðja sæti en hann púttaði niður fjórða höggi sínu á lokaholunni í mótinu fyrir fugli. Keegan Bradley er í öðru sæti fyrir laglegt vipp högg sem fór niður fyrir fugli. Steve Marino á hins vegar besta högg helgarinnar en hann sló niður öðru höggi sínu á 17. holu. Flottur örn hjá Marino. Höggin glæsilegu má sjá hér að ofan.

Steve Marino átti besta högg helgarinnar.