Fréttir | þriðjudagur 31. janúar 2012 | 12:55
Stefán varð í 23. sæti í Tyrklandi
Stefán Már Stefánsson úr Golfklúbbi Reykjavíkur varð í 23. sæti á Sueno Dunes Classic mótinu sem lauk í dag í Tyrklandi á þýsku EPD-mótaröðinni. Hann lék samtals á þremur höggum yfir pari í mótinu en leiknir voru þrír hringir í mótinu.
Stefán náði sér ekki á strik í dag og lék lokahringinn á 74 höggum eða fimm höggum yfir pari. Hann var í toppbaráttunni fyrir lokahringinn en missteig sig á seinni níu holunum sem varð til þess að hann féll niður töfluna. Stefán var á pari eftir fyrri níu holurnar en lék þær seinni á fimm höggum yfir pari.
Austurríkismaðurinn Florian Gogatschnigg fór með sigur af hólmi í mótinu en hann lék á samtals sjö höggum undir pari í dag og fagnaði góðum sigri. Stefán fær um 370 evrur fyrir árangurinn í mótinu eða um 60 þúsund krónur. Hann hefur komist í gegnum niðurskurðinn í öllum þremur mótunum á EPD-mótaröðinni í ár.
Stefán er í 32. sæti á tekjulistanum eftir fyrstu þrjú mótin en hann hefur unnið sér inn 1.073 evrur til þessa. Tékkinn Novy, Marek Novy er efstur með 6.103 evrur í verðlaunafé á þessari leiktíð. Næsta mót á mótaröðinni hefst næsta fimmtudag og verður þá áfram leikið á Sueno Dunes vellinum í Belek, Tyrklandi.
Lokastaðan í mótinu