Fréttir | þriðjudagur 31. janúar 2012 | 10:29

Pokinn hjá sigurvegurum helgarinnar


Þeir Brandt Snedeker og Robert Rock sigruðu í stóru mótum helgarinnar í atvinnugolfinu. Rock vann frábæran sigur á Abu Dhabi Championship mótinu og hafði þar betur gegn kylfingum líkt og Rory McIlroy og Tiger Woods. Rock er með TaylorMade R11 dræver í pokanum.

Brandt Snedeker vann ótrúlegan sigur í Farmers Insurance Open. Hann fékk sigurinn nánast á silfurfati eftir að Kyle Stanley kastaði sigrinum frá sér með dramatískum hætti. Hann er með TaylorMade Burner dræver, Adams blending og Bridgestone J40 járn. Búnaðinn hjá sigurvegurum helgarinnar má sjá hér að neðan.

Brandt Snedeker
PGA-mótaröðin - Farmers Insurance Open
Dræver: TaylorMade Burner SuperFast 2.0 (10.5°)
Brautartré: TaylorMade Burner SuperFast 2.0 3-tré (15°)
Blendingur: Adams Idea a12 Proto (20°)
Járn (4-PW): Bridgestone J40 Cavity Back
Fleygjárn: Bridgestone J40 Satin Chrome (52° og 56°) og Titleist Vokey Design Spin Milled (60°)
Pútter: Odyssey White Hot XG Rossie
Bolti: Bridgestone Tour B330
Skór: Adidas adiPure

Robert Rock
Evrópumótaröðin - Abu Dhabi Championship
Dræver: TaylorMade R11 (9°)
Brautartré: Callaway RAZR Hawk 3-tré (13°)
Járn (2-PW): Callaway X-Forged (True Temper Dynamic Gold X100 shafts)
Fleygjárn: Callaway X-Tour Forged (52°); Cleveland CG14 Black Pearl (58°)
Pútter: Odyssey Odyssey Black Series i #1
Bolti: Titleist Pro V1x
Skór: FootJoy FJ Icon
Hanski: Titleist Players