GS_opindagur.leiran.2012mai
Hleð inn spilara...


Fréttir | þriðjudagur 31. janúar 2012 | 09:33

GolfTV: Írsk lukka hjá McDowell


N-Írinn Graeme McDowell hafði heldur betur heppnina með sér á lokaholunni í Abu Dhabi HSBC Championship mótinu sem lauk á sunnudag. McDowell átti misheppnað högg úr glompu við 18. flötina sem hafnaði í áhorfendastúku og skaust þaðan í áttina að holunni.

McDowell þakkaði fyrir sig með því að setja púttið niður fyrir fugli af um þriggja metra færi og varð að lokum í þriðja sæti í mótinu. Eins og áður hefur komið fram hér á Kylfingi.is þá fór McDowell einnig holu í höggi á 12. holu á lokahringnum. Heppnin var hreinlega með McDowell á lokahringnum.

Tengdar fréttir:
GolfTV: Ásinn hjá McDowell í dag