Fréttir | mánudagur 30. janúar 2012 | 15:53
Einar Long náði ekki keppnisrétti á Öldungamótaröðinni
Einar Long úr Golfklúbbi Reykjavíkur reyndi fyrir sér á úrtökumóti fyrir evrópsku Öldungamótaröðina sem fram fór um helgina. Einar fann sig ekki í mótinu og komst ekki í gegnum niðurskurðinn í úrtökumóti á fyrra stigi en leikið var í Portúgal.
Einar lék hringina tvo á 83 og 79 höggum eða samtals á 18 höggum yfir pari. Hann hefur reynt við mótaröðina undanfarin ár hafði ekki erindi sem erfiði að þessu sinni.
Lokaúrtökumótið fyrir mótaröðina hófst í dag og má fylgjast með gangi mála með að smella hér.